Íslandsmót í bardaga
Íslandsmót í bardaga
Íslandsmótið í bardaga verður haldið í íþróttamiðstöðinni á Ásbrú, Reykjanesbæ, sunnudaginn 25. mars n.k. Íþróttahúsið er staðsett við mót Flugvallarbrautar og Grænásbrautar á Ásbrú
Keppnisgjaldið er 2500 kr.
Reynt verður eftir fremsta megni að halda flokkum jöfnum miðað við kyn, aldur, þyngd og belti. Mótsjórn er með viðmið fyrir alla flokka sem reynt verður að fylgja en mun þó ávallt vera háð skráningu. Ef sameina þarf munu tilkynningar vera sendar á þjálfara viðkomandi iðkenda.
Beltaflokkar
Reynt verður að hafa tvo beltaflokka. Annar flokkurinn að 5. geup (rauð rönd) og hinn flokkurinn rautt belti og hærra. Mótsjórn áskilur sér rétt til að sameina flokka þrátt fyrir þessi viðmið ef hún telur þess þörf.
Aldursflokkarnir
Aldursflokkar eru eftirfarandi og miðast við fæðingardag og mótsdag. Mótsjórn áskilur sér rétt til að sameina flokka þrátt fyrir þessu viðmið ef hún telur þess þörf.
Barnaflokkur 12-14 ára
Junior 15-17 ára
Senior 18-29 ára
Superior 30+ (núverandi og fyrrum landsliðsmenn munu keppa í senior flokki þrátt fyrir aldur)