Mót 1 – Íslandsmeistara mótaröðin í Klifurhúsinu 2015-2016 verður sunnudaginn 4.okt 2015
Þá er komið að fyrsta mótinu í Íslandsmeistara mótaröðinni í grjótglímu veturinn 2015-2016.
Það verður haldið í Klifurhúsinu, Ármúla 23, 108 Reykjavík.
12 ára og yngri keppa á milli kl 12 – 13:30 og 13 ára og eldri frá kl 14:00 – 16:00.
Mætum minnst 15 mín fyrir keppni til að hita upp.
Hvetjum alla sem hafa áhuga á að fara og taka þátt.
ATH: KEPPNISGJALD ER 1000 KR, GREIÐIST VIÐ SKRÁNINGU.