AÐALFUNDUR
Aðalfundur fimleikafélagsins Björk verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl nk. kl. 20:00 í Íþróttamiðstöðinni Björk að Haukahrauni.
Dagskrá er samkvæmt grein 4.3 í lögum félagsins sem finna má á heimasíðu félagsins fbjork.is.
Athygli er vakin á að framboðsfrestur til stjórnarsetu í aðalstjórn eru 10 dagar fyrir aðalfund og skal framboðum skila á skrifstofu félagsins. Reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
Fimleikafélagið Björk