09-10-2012 - Haustfjrflun 2012 farin af sta! Salernis-. eldhspappr og fleiri vrur
Haustfjáröflun 2012 er nú farin af stað.
Við höldum áfram sölu á þessu hefðbundna, þ.e. salernis- og eldhúspappír ásamt plastpokum, lakkrís, kaffi, o.fl. Hagstæð verð. 5% af heildarsölu iðkenda verður skráð sem innborgun inná æfingagjöld hjá félaginu.
Sækið upplýsingar um allar vörur til sölu hér! Sækið pöntunarblað hér! Síðasti skiladagur á pöntunarblaði er miðvikudaginn 24. október. Mjög gott að fá rafrænt!
Uppfært 24. okt.: ATH! FRAMLENGDUR SKILAFRESTUR Á PÖNTUNARBLÖÐUM TIL ÞRIÐJUD. 30. OKT. Stefnum þó að því að byrja að afgreiða vörur frá mánud. 29. okt. eins og upphaflega var áætlað. Vörur pantaðar eftir 24. okt. munum við byrja að afgreiða frá mánud. 5. nóv.
Við höldum áfram að safna fyrir bættri æfingaaðstöðu í félaginu okkar. Í ár hafa dýnur verið endurnýjaðar og þeim viðhaldið fyrir á hátt í eina milljón króna. Núna í lok sumars keypti félagið nýjan svamp í púðagryfjuna í Litlu Björk fyrir um 1,5 milljón króna.
Vonandi geta sem flestir verið með. Gangi ykkur vel!
|