|
Grunnupplýsingar:
Fimleikafélagið Björk Haukahrauni 1, 220 Hafnarfjörður sími: 565 2311 tölvupóstur (almennar fyrirspurnir): fbjork@fbjork.is tölvupóstur (leiga á sölum): leiga@fbjork.is tölvupóstur (gjaldkeri): hafsteinn@fbjork.is heimasíða: www.fbjork.is kt. 550110-1130
Þjónusta:
Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 14.00-16.00. Sími á skrifstofu er 565 2311. Bendum á að senda almennar fyrirspurnir á fbjork@fbjork.is. Fyrirspurnir vegna leigu á sölum sendið leiga@fbjork.is. Tölvupóstfang hjá gjaldkera er hafsteinn@fbjork.is. Við svörum öllum tölvupóstum. Ef við náum ekki að svara símhringingum flyst símtalið í símsvara og hvetjum við fólk til að leggja inn skilaboð sem verður svarað eins fljótt og hægt er.
Æfingar hjá félaginu:
Æfingaannir hjá félaginu eru tvær, haustönn og vorönn. Haustönn er 5 mánuðir, þ.e. frá byrjun ágúst til loka desember og vorönn er 6 mánuðir, þ.e. frá byrjun janúar til loka júni. Langflestir hópar félagsins æfa hins vegar skemur, þ.e. 16 vikur á haustönn, frá sept. til ca. 15. des., og 20 vikur á vorönn, frá janúar og til loka maí.
Auk ofangreinds býður félagið uppá leikjanámskeið og íþróttanámskeið, í þeim íþróttum sem stundaðar eru hjá félaginu, í júní og í ágúst.
Uppgjör æfingagjalda:
Gjalddagar æfingagjalda er 20 sept. (haustönn) / 20. janúar (vorönn). ATH! Hafi ekki verið gengið frá uppgjöri æfingagjalda fyrir þann tíma innheimtir félagið frá þeim tíma, í gegnum heimabanka forráðamanna, 10% dráttarvexti og innheimtukostnað (per ár), ofan á ógreidda fjárhæð.
Öll æfingagjöld skulu gerð upp í gegnum uppgjörskerfi Nóra, smellið hér! Allir sem rétt eiga á niðurgreiðslu að hálfu Hafnarfjarðarbæjar þurfa að greiða þar í gegn.
ATH! Fjárhæð niðurgreiðslunnar er hærri eftir því sem fyrr er greitt i gegnum Nóra uppgjörskerfið!
Inni í Nóra uppgjörskerfinu eru tveir möguleikar í boði við uppgjör æfingagjalda:
a) Kreditkort: Ef valið er að greiða með kreditkorti er hægt að dreifa greiðslum á þann fjölda tímabila sem gefin er upp í valmynd.
b) Millifærsla: Ef millifærsla er valinn verður forráðamaður að millifæra fjárhæð æfingagjalda inn á reikn. okkar nr. 0544-04-200757, kt. 550110-1130. Sendið staðfestingu á greiðslu á gjaldkera okkar, netfang hafsteinn@fbjork.is (kt. iðkanda). Sé þessi leið valin er nauðsynlegt að greitt hafi verið 50% æfingagjalda fyrir 20. sept. (haustönn) / 20. janúar (vorönn), og restin fyrir 5. nóv. (haustönn) / 5. mars (vorönn).
Sé greiðandi í vafa um skulda- eða inneignastöðu iðkanda (t.d. vegna styrks frá Hafnarfjarðarbæ) sendið þá fyrirspurn á gjaldkera okkar, hafsteinn@fbjork.is, og við sendum ykkur yfirlit yfir hreyfingar og stöðu um hæl. Varðandi endurgreiðslur á styrkjum Hafnarfjarðarbæjar, sjá lið f) í reglum um innheimtu æfingagjalda hér að neðan.
Verðskrá haust- og vorannar tímabilið 2012-2013, sjá hér!
Reglur um innheimtu æfingagjalda:
a) Gjalddagi æfngagjalda er 20. sept. (haustönn) / 20. janúar (vorönn). Hafi ekki verið gengið fá uppgjöri æfingagjalda fyrir þann tíma innheimtir félagið frá þeim tíma 10% dráttarvexti (per ár) og innheimtukostnað, ofan á ógreidda fjárhæð frá þeim tíma. b) Iðkendur geta ekki hafið æfingar á námskeiði (önn/sumarnámskeið) né tekið þátt í mótum fyrir hönd félagsins nema vera skuldlausir eða hafa áður samið um uppgjör eldri skulda. c) Æfingagjöld eru fyrir heil námskeið. Hætti iðkandi fyrir lok námskeiðs fær hann því ekki endurgreitt, nema rök knígi á um annað. d) Hefji iðkandi æfingar á miðju námskeiði greiðir hann æfingagjöld hlutfallslega frá fyrstu æfingu. e) Fimleikafélagið Björk áskilur sér rétt til að fella niður námskeið og endurgreiða iðkendum, ef ekki fæst næg þátttaka. f) Hafi félagið fengið staðfestingu á því að iðkendi ætli að taka þátt í tilteknu námskeiði (þar sem stundarskrá liggur fyrir) en hann mætir síðan ekki, áskilur félagið sér rétt til að innheimta 1/5 hluta námskeiðsgjalda hjá viðkomandi. g) Foreldrar/forráðamenn þurfa að ganga frá greiðslum æfingagjalda í gegnum 'Mínar síður'. Félagið mun endurgreiða styrki til iðkenda hafi þeir borist félaginu. Skulda-/eignastaða iðkenda hjá félaginu er leiðrétt um fjárhæð innborgaðra styrkja um leið og þeir eru greiddir inn til félagsins. Foreldrar/forráðamenn/iðkendur geta hvenær sem er fengið yfirlit yfir skulda-/eignastöðu sína hjá félaginu. Styrkurinn miðast við að iðkandinn stundi íþróttina á æfingatímabilinu. h) Fjölskylduafsláttur er 10% (samtals verð fyrir alla fjölskyldumeðlimi x 0,9), og kemur fram í greiðslukerfi Nóra. i) Byrjendum er boðið uppá einn prufutíma (ókeypis). Þjálfari hóps eða yfirþjálfari þurfa að gefa samþykki fyrir prufutíma.
Greiðslur fyrir leigu á sal:
Greiðslu fyrir leigu á sal á að leggja inná reikning nr. 0544-04-200758, kt. 550110-1130. ATH! Munið að senda kvittun fyrir greiðslu á netfang okkar: leiga@fbjork.is (dags. leigu).
Starfsfólk skrifstofu:
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdarstjóri, netfang: fbjork@fbjork.is. Hafsteinn Þórðarson, bókhald, fjárreiður og innheimta, netfang: hafsteinn@fbjork.is. Starfsmaður á skrifstofu, ýmis mál: Ragnheiður Hjaltalín netfang: ragnheidur@fbjork.is.
Þjónusta í íþróttamiðstöð:
Í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvarinnar er hægt að nálgast óskilamuni. Síminn þar er 564 0730. Einnig ber að tilkynna öll veikindi þangað. Hægt að greiða fyrir leigu á sal, í pottinn og í gufu, í andyri.
Uppbygging félagsins:
Lög félagsins er hægt að nálgast hér!
Handbók félagsins er hægt að nálgast hér (ATH. Uppfærsla á handbók er fyrirhuguð fyrir vorönn 2011)! Í inngangi handbókar stendur: "Hlutverk þessarar handbókar er að vera stjórnum og starfsmönnum Fimleikafélagsins Björk sem og iðkendum hjá félaginu og foreldrum/forráðamönnum þeirra til upplýsinga um skipulag og starfsemi Fimleikafélagsins Björk."
Auk þessa gefa deildir félagsins út upplýsingarit um markmið og innra skipulag deilda. Þau má nálgast hér: Fimleikadeild, klifurdeild, taekwondodeild, almenningsdeild.
|