top of page
441955014_1027705788838085_923599112129475579_n.jpg

Taekwondo

Tae Kwon Do er talin vera rúmlega 2000 ára gömul íþrótt sem þróast hefur í gegnum árin. Taekwondo er þjóðaríþrótt Kóreu og spilar stórt hlutverk í sögu kóresku þjóðarinnar. Saga Taekwondo Taekwondo á rætur að rekja til fólksins sem byggði Kóreu skagann. Hann var heimkynni margra kynslóða fólks sem lifði af jörðinni í nánu sambandi við náttúruna.

 

Sagan segir að upprunalegi forfaðirinn Tangun hafi stofnað Kóreanska ríkið, eða Gömlu Kóreu, árið 2.333 f. Kr. í Asdal. Tangun ríkið var til frá stofnun til 1.122 f.Kr. þegar Kaja ríkið tók við. Árið 193 f. Kr. breyttist Kaja ríkið í Wimwam ríkið sem entist aðeins til ársins 108 f. Kr. þegar því var skipt í þrjú konungsríki.

​

Í þessum konungsdæmum voru haldnar hátíðar og miklar samkomur þegar fólk tilbað guði sína með því að dansa, spila tónlist og keppa í íþróttum…ekki ólíkt íslenskum hefðum til forna.Þegar íþróttakeppni var haldin getum við ímyndað okkur að keppnin hafi falið í sér bogfimi, spjótakast og einhverskonar einvígi sem til eru í mörgum menningarsamfélögum í einu eða öðru formi sbr. glíma, hnefaleikar, skylmingar og að sjálfsögðu Judo og Karate o.s.frv.

​

Ein skemmtileg kenning um uppruna Taekwondo er að háu spörkin sem nútíma iðkendur framkvæma hafi þróast þegar Kóreumenn voru neyddir til að verja sig gegn innrásum óvina á hestabakki. Stökkspörk og önnur há, kröftug spörk kynnu að fella reiðmanninn af hesti sínum og jafna þannig leikinn. Meðal mikilvægustu hátíðanna voru Yongko í Puyo ríkinu, Tongmaeng í Koguryo ríkinu, Muchon í Yeh ríkinu og Mahan og Kabi í Sillu konungsríkinu.
Texti:Sigrún Anna Qvindesland (texti fengin af taekwondo.is)

bottom of page